Steindór Sigurjónsson leikmaður Sindra sem leikur í 3. deild karla fer ekki í grafgötur með kynheigð sína.
Steindór kom út úr skápnum á síðasta ári en hann leikur sem varnarmaður.
,,Það er bara mjög venjulegt að vera samkynheigður í fótbolta, þetta breyttist alla vegana ekkert hjá mér eftir að ég kom út," sagði Steindór í samtali við Fótbolta.net
Það eru ekki margir sem hafa komið út úr skápnum í íslenskri knattspyrnu en Steindór segist ekki vita um neinn.
,,Ég veit ekki til þess að neinn samkynheigður sé að spila fyrir utan, Styrmi (Fótboltalið samkynheigðra)."
,,Strákarnir í liðinu tók þessu bara vel eins og ég best veit en það er kannski betra að spyrja þá að því," sagði Steindór sem segir liðsfélaga sína ekki feimna að henda sér í sturtu með honum.
,,Ég held að þeim finnist ekkert að því ég fer alla vegana aldrei einn í sturtu."
,,Ég hef ekki fundið fyrir fordómum hingað til en það hefur kannski verið gargað á eftir mér ´Ekki láta þennan homma fara framhjá mér´. Ég læt það ekki trufla mig og er alveg sama."
,,Ég spila sem miðvörður en spila bara þar sem mér er sagt að spila," sagði Steindór í samtali við Fótbolta.net.


