Kristján Ari Halldórsson átti algjöran stórleik á vinstri kantinum hjá ÍR í 5-1 sigri á Njarðvík síðastliðinn fimmtudag. Kristján Ari skoraði tvö mörk og lagði upp tvö en hann er leikmaður 13.umferðar hér á Fótbolta.net.
Aldur: 23 ára
Leikir með ÍR: 82 og 22 mörk
Fyrri félög: HK
Lið á Englandi: Liverpool
Uppháhald knattspyrnumaður: Robbie Fowler var alltaf nr.1 en núna er svo sem enginn einn sérstakur í uppáhaldi. Bara margir góðir
Kristján fór á kostum í leiknum og hann segir að þetta sé langbesta frammistaða sín í sumar.
,,Já ætli það sé ekki óhætt að segja það. Ég er svo sem alveg búinn að eiga nokkra þokkalega leiki í sumar en núna gekk þetta allt upp."
,,Það var virkilega gaman að ná inn svona toppleik eftir ekki nógu gott gengi í síðustu leikjum þar sem við erum búnir að vera að tapa stigum."
ÍR náði með sigrinum að komast upp í 23 stig en liðið er í fjórða sæti, tveimur stigum frá öðru sætinu. ÍR var spáð tíunda sæti fyrir tímabilið og gengi liðsins hefur því verið fyrir ofan þær væntingar.
,,Þegar ég lít heilt yfir á þetta þá getur maður svo sem ekki verið annað en sáttur þó að maður horf frekar svekktur á eftir 4-6 stigum úr síðustu leikjum."
,,Við erum einhverjum nokkrum stigum frá toppnum núna og ef við höldum áfram að spila eins og við gerðum í síðasta leik getum við alveg strítt þessum liðum í kringum okkur."
,,Ég geri mér alveg grein fyrir því að það þarf ýmislegt að ganga upp hjá okkur ef við eigum að fara upp en ég hef fulla trú á þessu liði."
,,Við spilum bara okkar bolta, reynum að hafa gaman að þessu og hölum inn eins mikið af stigum og við getum svo skoðum við þetta bara í lok móts."
ÍR lék síðast í efstu deild árið 1998 en Kristján Ari segir að liðið núna sé eitt það besta í mörg ár hjá Breiðhyltingum.
,,Já ég held að það sé ekki á neinn hallað þegar ég segi það. ÍR hefur ekki átt lið svona ofarlega í einhver 10-15 ár held ég og taflan lýgur ekki. Það er bara þannig," sagði Kristján Ari léttur í bragði að lokum.
Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 12. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 11. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 10. umferðar: Kristján Finnbogason (Grótta.)
Leikmaður 9. umferðar: Viktor Örn Guðmundsson (Víkingur R.)
Leikmaður 8. umferðar: Muamer Sadikovic (Þróttur)
Leikmaður 7. umferðar: Halldór Arnarsson (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)


