Reynir S. 2-3 Höttur
0-1 Garðar Már Grétarsson
1-1 Anton Ástvaldsson (sjálfsmark)
1-2 Sigurður Donys Sigurðsson
2-2 Davíð Örn Hallgrímsson
2-3 Sigurður Donys Sigurðsson
0-1 Garðar Már Grétarsson
1-1 Anton Ástvaldsson (sjálfsmark)
1-2 Sigurður Donys Sigurðsson
2-2 Davíð Örn Hallgrímsson
2-3 Sigurður Donys Sigurðsson
Vopnfirðingnum Sigurður Donys fór illa með sína gömlu félaga í Reyni á Sandgerðisvelli. Hann náði að skora tvö mörk á þeim 13 mínútum sem hann var inn á í lok leiksins og tryggði þar með Héraðspiltum sigurinn í annars bragðdaufum leik sem var spilaður fyrir vel á þriðja hundrað áhorfendur við góðar aðstæður.
Þrátt fyrir mikla yfirburði Reynismanna í fyrri hálfleik náðu þeir ekki að koma knettinum í netið hjá Hetti. Heimamenn voru mikið með boltann og fengu nokkur ágæt færi til að skora en inn vildi boltinn ekki. Gestirnir heppnir að komast í hálfleiksteið án þess að hafa fengið á sig mark.
Í upphafi síðari hálfleiks skiptu liðin um hlutverk. Ákveðni Hattarmanna skilaði þeim marki á 51. mínútu þegar Garðar Már Grétarsson náði að pota boltanum í netið hjá Reyni eftir þunga sókn þar sem bjargað var á línu og boltinn fór í slána áður en markið kom. Stuttu eftir markið misstu Reynismenn Sinsa Kekic meiddan af leikvelli, en hann hafði verið besti maður vallarins fram að því. Tilbreytingarlítill sóknarleikur Reynis beit lítið á liði Hattar sem lá aftarlega á vellinum og lokaði vel öllum svæðum.
Reynismenn náðu að jafna þegar um 20 mínútur voru til leiksloka. Glæsileg sókn Reynis, sem byrjaði með góðri langsendingu frá Marteini Guðjónssyni, galopnaði þá vörn Hattar með þeim afleiðingum að Anton Ástvaldsson sendi knöttinn í eigið mark. Markið virtist gefa Sandgerðingunum trúna á ný og þeir virtust líklegir til að taka forystuna.
Mark Reynis virtist liggja í loftinu þegar varamaðurinn Sigurður Donys fékk boltann á vinstri kantinum þegar innan við tíu mínútur voru til leiksloka. Hann komst fram hjá einum varnarmanni Reynis og skaut að marki vel fyrir utan vítateiginn. Skotið virkaði slakt og einfalt fyrir Aron Elís að verja, en á einhvern undarlegan hátt missti markvörðurinn ungi boltann úr fanginu í stöngina og inn í markið.
Fimm mínútum síðar voru Reynismenn búnir að jafna á ný. Magnús Ólafsson slapp þá einn inn fyrir vörn Hattar, en í stað þess að skjóta sjálfur sendi hann knöttinn á Davíð Örn Hallgrímsson sem skoraði örugglega af stuttu færi.
Sigurmark leiksins kom á lokamínútunni og var af fínni gerðinni. Hattarmenn unnu baráttu á miðju vallarins og barst boltinn til Sigurðar Donys sem skoraði með glæsilegu langskoti af 20 metra færi. Ekki gafst tími fyrir fleiri marktækifæri og fyrsti ósigur Reynismanna á heimavelli í deildinni staðreynd þetta tímabilið.






