KS/Leiftur 1-1 KV
0-1 Örn Arnaldsson
1-1 Sigurbjörn Hafþórsson
0-1 Örn Arnaldsson
1-1 Sigurbjörn Hafþórsson
Það var norðan fínt fótboltaveður á Siglufjarðarfelli þegar heimamenn úr KS/Leiftri tóku á móti KV. Fyrir fram hefði mátt búast við nokkuð auðveldum sigri heimamanna á móti gestunum, enda voru þeir einungis með 2 stig fyrir þennan leik.
Leikurinn byrjaði mjög fjörlega því strax eftir tvær mínútur gat staðan verið orðin 1-1. KV fékk fyrsta færi leiksins þegar sóknarmaður þeirra átti skot að marki heimamanna en það var bjargað á línu. Heimamenn náðu að hreinsa frá og komst Milan sóknar maður KS/Leifturs í gegn um vörn gestana, Daníel Kristinsson góður markmaður KV þeirra varði vel, eins og hann átti eftir að gera mjög oft í leiknum.
Heimamenn stjórnuðu eðlilega leiknum og voru meira með boltann. Eiríkur Magnússon átti bylmings skot í stöng gestana á 25.mínútu og er ekki ólíklegt að vallarvöðurinn á siglufjarðarvelli þurfi að skoða hvort stöngin hafi ekki skemmst svo fast var skotið. Gestirnir heppnir að vera ekki komnir undir.
KV komst yfir á 40 mín eftir að hafa fengið mjög ódýra aukaspyrnu út við vinstra vítateigshornið Örn Arnaldsson gerði mjög vel og setti boltann yfir varnarvegginn og niður í færhorn Nezirs í marki KS/Leifturs. Mjög góð spyrna hjá Erni þess má geta að KV menn skoruðu ekki ósvipað mark í fyrri leik liðanna í vesturbænum. Heimamenn voru komnir upp við vegg en fengu eitt dauðafæri alveg undir lok fyrrihálfleiks eftir hornspyrnu.
Þá náði Kristján Vilhjálmsson skalla á markið sem var vel varin og Þorvaldur Sveinn fékk frákastið en gestirnir náðu að bjarga á línu á ótrúlegan hátt. Síðari hálfleikur var eign heimamanna enda bökkuðu gestirnir frá vesturbænum mikið og eigðu von um fyrsta sigurinn á þessu tímabili.
KS/Leiftur fékk fjöldan allan af færum einkum eftir að hafa spilað út frá köntunum og gefið fyrir, en sóknirnar strönduðu flestar á góðum markmanni gestanna eða hávaxni vörn þeirra. KV fékk síðan ágætt færi eftir að heimamenn voru orðnir full ákafir í sóknarleik sínum á 73 mín en sóknarmaður þeirra var of lengi að athafna sig og náðu varnarmenn heimamanna að komast fyrir boltann áður en meiri hætta hlaust af.
Sigurbjörn Hafþórsson fékk dauða dauðafæri á 75. mínútu þegar hann fékk mjög góða fyrirgjöf frá Milan en setti boltan innanfótar framhjá þegar nær allir voru byrjaðir að fagna. Það var svo á 81. mínútu sem Sigurbjörn bætti fyrir færið þegar hann fékk aðra fyrirgjöf nú frá Agnari og náði hann að stýra boltanum í markið einn og óvaldaður í markteig gestana. Heimamenn fögnuðu ekki og flýttu sér aftur á sinn vallarhelming staðráðnir í að setja annað mark.
Kappið var mikið og KV menn hefðu getað skorað þegar Björn Ívar Björnsson komst nánast einn inn fyrir vörn heimamann en Nezir í marki KS/Leifturs varði vel með fótunum. Þær fimm mín sem eftir lifðu voru eign heimamanna og hefði þeir á venjulegum degi klárað leikinn, t.a.m. komst Hörður Már Magnússon í gegnum vörn gestanna og setti boltann framhjá Daníel í marki KV en varnarmenn gestana náðu að renna sér í boltann rétt áður en hann fór innfyrir línuna.
Milan komst upp að endarlínu og átti góða tilraun sem rúllaði eftir marklínunni og munaði litlu að boltinn endaði í varnarmanni KV og í markinu. En allt kom fyrir ekki og jafntefli niðurstaðan á Siglufjarðarvelli sem heimamenn voru ósáttir með en KV menn stigu sigurdans í klefasínum eftir leik, enda góð úrslit fyrir þá og þriðja stigið í sumar staðreynd.



