Heimild: BBC
Þá er komið að daglegum slúðurpakka í boði Powerade en þar er búið að taka saman helsta slúðrið í ensku götublöðunum.
Manchester City mun ganga frá kaupum á Mario Balotelli framherja Inter á 24 milljónir punda eftir að leikmaðurinn samþykkti samning upp á 65 þúsund pund í vikulaun. (Daily Mail)
David Beckham segist ætla að gefa West Ham loforð fljólega um það hvort hann muni enda ferilinn hjá félaginu. Beckham, sem leikur með Los Angeles Galaxy, fæddist í Austur London. (The Sun)
Roy Hodgson, stjóri Liverpool vill fá Stilyan Petrov miðjumann Aston Villa til að fylla skarð Javier Mascherano sem er á förum. Hodgson ætlar að bjóða í sjö milljónir punda í Petrov. (Daily Mirror)
Óvíst er hvort Luke Young, varnarmaður Aston Villa, fari til Liverpool þar sem hann þyrfti þá að taka á sig launalækkun. (Daily Mirror)
Ron Gourlay, framkvæmdastjóri Chelsea, segir að Carlo Ancelotti fái pening til leikmannakaupa og að Didier Drogba sé ekki á förum. (Daily Mirror)
Chelsea vill ganga frá kaupum á Ramies miðjumanni Benfica á 17 milljónir punda áður en liðið fer í æfingaferð til Þýskalands á laugardag. (Daily Star)
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, vill fá Ricardo Carvalho frá Chelsea. Mourinho fékk Carvalho til Chelsea á sínum tíma. (IM Scouting)
Mourinho segir að Real Madrid ætli ekki að fá David Luiz varnarmann Benfica og líklegast er að Brasilíumaðurinn fari til Manchester City. (IM Scouting)
Arsenal er við það að ganga frá kaupum á ítalska markverðinum Federico Marchetti frá Cagliari. Þessi 27 ára gamli leikmaður er metinn á fimm milljónir punda en hann lék á HM í Suður-Afríku fyrr í sumar. (IM Scouting)
Wigan er tilbúið að borga sjö milljónir punda til að fá framherjann Humberto Suazo frá Monterrey. Þessi 29 ára gamli leikmaður kemur frá Chile en Birmingham og Sunderland hafa einnig sýnt honum áhuga. (The Sun)
Blackburn gæti selt ástralska miðjumanninn Vince Grella til Galatasaray á tvær milljónir punda. (Daily Mirror)
Mark Hughes, verðandi stjóri Fulham, vill kaupa Craig Bellamy frá Manchester City. (Goal.com)
Tottenham ætlar að bjóða fjórar milljónir punda í Bellamy. (Daily Mail)
Danski bakvörðurinn Anders Lindegaard, sem leikur með Álasund, gæti verið á leið til Manchester United. (Daily Mail)
Manchester United er í bílstjórasætinu í baráttunni um Anthony Annan miðjumann Rosenborg. Chelsea og Arsenal hafa líka áhuga á Annan sem kemur frá Ghana. (The Sun)
Besiktas ætlar að reyna að fá John Carew framherja Aston Villa. (Daily Mail)
Mick McCarthy, stjóri Wolves, hefur útilokað að kaupa Michael Mancienne frá Chelsea. (Daily Mail)
West Ham hefur boðið Scott Parker 20 milljónir punda til að vera áfram hjá félaginu en miðjumaðurinn knái vill fara til að taka þátt í Evrópukeppni. (Daily Mail)
Avram Grant vill fá varnarmanninn Laurent Bonnart en hann er samningslaus eftir að hafa yfirgefið Marseille. (Daily Mail)
Blackpool á í viðræum við Jon Stead framerja Ipswich. (Daily Mirror)
Bristol City hefur boði David James eins árs samning. James, sem er 39 ára, er án félags sem stendur. (Daily Mirror)
Portsmouth gæti þurft að borga meira en 500 þúsund pund í laun til leikmanna sem eru ekki lengur hjá félaginu. David James mun fá 140 þúsund pund ef hann semur ekki við annað félag fyrir laugardagskvöldið. (Daily Express)
John Bostock, 18 ára miðjumaður hjá Tottenham, telur að erlendir leikmenn séu að koma í veg fyrir að hann fái tækifæri hjá Spurs. Bostock var í láni hjá Brentford á síðasta tímabili og hann vill fara aftur á lán á komandi tímabili. (Ýmsir miðlar)
Áhorfendur fögnuðu vel og innilega þegar Robert Green, markvörður West Ham, varði sitt fyrsta skot í 2-0 sigri á MK Dons í æfingaleik í gærkvöldi. Green gerði sig sekan um slæm mistök þegar enska landsliðið gerði 1-1 jafntefli við Bandaríkin á HM. (Ýmsir miðlar)



