Heimild: Sky
Cesc Fabregas fyrirliði Arsenal viðurkennir að allur orðrómurinn tengdur félagsskiptum hans til Barcelona hafi vakið blendnar tilfinningar.
Þessi spænski landsliðsmaður yfirgaf Börsunga sem táningur til að ganga til liðs við Arsenal og hefur hann vaxið þar og dafnað og er nú einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar, ef ekki heims.
Þessi 23 ára miðjumaður viðurkennir að hann sé Katalóníumaður í hjarta sér en að hann geti þó ekki brugðist skuldbindingum sínum gagnvart Arsenal.
„Ég er stuðningsmaður Barcelona líkt og afi minn og frændur mínir. Ég hef alist upp við liti Barcelona frá barnsaldri, ég er Katalóníumaður,“ sagði Fabregas.
„En aftur á móti er ég fyrirliði Arsenal, ég er Arsenal maður, og ég hef þroskast mikið sem leikmaður og manneskja hér.“
„Arsene Wenger er eins og minn annar faðir. Hann er ásamt föður mínum mikilvægasta manneskja lífs míns og hann hefur tekið mig að sér líkt og eigin son. Ég er hluti af hans fjölskyldu.“
„Hann vill ekki að ég fari, og seinasta samtal mitt við hann í London var eitt af erfiðustu stundum lífs míns. Ég endaði í miklu uppnámi.“



