Heimild: AFP
Gríska félagið Panathinaikos mun í dag ganga frá kaupum á Jean Alain Boumsoung varnarmanni Lyon.
Talið er að kaupverðið hljóði upp á 850 þúsund evrur en Boumsong mun gera þriggja ára samning við Panathinaikos.
Boumsong, sem er þrítugur, hefur áður leikið með Juventus, Newcastle United, Rangers, Auxerre og Le Havre.
Hjá Panathinaikos hittir hann fyrir landa sína Djibril Cisse og Sidney Govou sem samdi við félagið á dögunum.



