Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 30. júlí 2010 08:35
Magnús Már Einarsson
Myndbrot úr leik Leiknis og Víkings: Vítaspyrna gripin
Fannar misnotaði vítaspyrnu.
Fannar misnotaði vítaspyrnu.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Leiknismenn hafa birt á heimasíðu sinni svipmyndir úr 2-0 sigri liðsins á Víkingi R. í fyrrakvöld.

Þar má meðal annars sjá mörkin sem Kjartan Andri Baldvinsson og Kristján Páll Jónsson skoruðu í leiknum.

Að auki má sjá vítaspyrnu sem Fannar Þór Arnarsson misnotaði undir lok leiksins.

Fannar ætlaði þá að vera svellkaldur og vippa boltanum í mitt markið en Magnús Þormar, markvörður Víkings, las hann eins og opna bók eins og sjá má aftast í myndbandinu.

Smelltu hér til að sjá myndbandið á heimasíðu Leiknis
Slapp
banner
banner