Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður á sínum stað á morgun þrátt fyrir Verslunarmannahelgi. Þátturinn er á dagskrá alla laugardaga milli 12 og 14 á X-inu FM 97,7.
Þáttastjórnendur munu skoða stöðuna á Íslandsmótinu vel og vandlega en nú eru línur farnar að skýrast í flestum deildum.
Meðal annars verður hringt til Vestmannaeyja þar sem Eyjamenn fá mikinn fjölda í heimsókn á Þjóðhátíð um helgina og stemningin skoðuð hjá toppliði ÍBV.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson en ef þú hefur eitthvað fram að færa í þáttinn er tölvupósturinn [email protected]. Hægt er að hlusta á X-ið á netinu með því að smella hérna
Smelltu hér til að hlusta á eldri útvarpsþætti



