Hinn ungi og efnilegi Rúrik Gíslason var á skotskónum í Evrópudeildinni í gærkvöldi þegar OB vann 5-3 sigur á Zrijnksi í Óðinsvéum.
Rúrik skoraði fyrsta mark OB á 16. mínútu, einungis mínútu eftir að gestirnir höfðu komist yfir, en boðið var upp á sannkallaða markaveislu í Danmörku.
Nígeríumaðurinn Peter Utaka skoraði tvö af mörkum OB sem eru í kjörstöðu fyrir síðari leik liðanna í Bosníu Hersegóvínu í næstu viku.
Rúrik hefur heldur betur verið að stimpla sig inn í lið OB eftir að hafa gengið til liðs við félagið frá fyrstu deildarliði Viborg.


