Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 30. júlí 2010 05:55
Hafliði Breiðfjörð
Íslenski fótboltinn kominn í langt hlé
Breiðablik og Valur mætast á miðvikudaginn í næstu viku.
Breiðablik og Valur mætast á miðvikudaginn í næstu viku.
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Það eru engir leikir á dagskrá í íslenska fótboltanum í dag og í raun langt þangað til leikið verður hér á landi að nýju.

Ástæðan er auðvitað sú að nú er verslunarmannahelgi og Íslendingar flykkjast út um landið og gera sér góðan dag.

Fótboltamenn eru hluti af þessu fólki sem nú fær að slaka á því enginn fótbolti verður spilaður hér á landi fyrr en á miðvikudaginn í næstu viku þegar einn leikur fer fram og fjörið fer svo á fullt frá og með fimmtudeginum.

Næstu leikdaga má sjá hér að neðan.

Miðvikudagurinn 4. ágúst:
Pepsi-deild karla:
19:15 Breiðablik - Valur

Fimmtudagurinn 5. ágúst:
Meistarakeppni kvenna:
18:00 Breiðablik - Levadia Tallinn

Pepsi-deild karla:
19:15 Grindavík - Fram
19:15 Fylkir - Keflavík
19:15 ÍBV - FH
19:15 KR - Stjarnan
19:15 Haukar - Selfoss

1. deild karla:
19:00 Þróttur - Fjölnir

3. deild karla:
19:00 Árborg - KFR
19:00 Léttir - Tindastóll
19:00 Dalvík/Reynir - Samherjar

1. deild kvenna:
19:00 Fjölnir - ÍR
Slapp
banner
banner