Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 30. júlí 2010 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Verslunarmannahelgi: Auðvelt að fylgjast með Fótbolta.net
Nú þegar stærsta ferðahelgi ársins er að hefjast er mikilvægt fyrir þá sem fylgjast vel með boltanum að vita að auðvelt er að fylgjast með Fótbolta.net í farsímum því allar fréttir vefsins uppfærast jafnóðum á farsímaútgáfu vefsins. Þá er einnig hægt að sjá úrslitaþjónustu þar sem staða leikja uppfærist jafnóðum og mörk eru skoðuð.

Farsímavefur Fótbolta.net er á slóðinni m.fotbolti.net. Vefinn, m.fotbolti.net er hægt að skoða í venjulegum netvafra og þannig auðvelt að afrita link á fréttir og með SMS í gegnum vefi símafyrirtækjanna. Símanotandi getur svo smellt á í SMS skilaboðum til að skoða.

Símaútgáfa Fótbolta.net hefur verið opin undanfarin ár en með þessum hætti er til dæmis auðvelt að fylgjast með beinum textalýsingum af öðrum leikjum í deildunum þegar maður er á vellinum, nánari upplýsingar um atvik sem varð í leik sem þú ert sjálf/ur að horfa og svo framvegis. Ómissandi fyrir fólk sem kemst ekki í tölvu en þarf að fá sinn skammt af Fótbolta.net reglulega.

Um helgina lokast félagaskiptaglugginn hér á landi og því spennandi fyrir áhugsama að fylgjast með hvort þeirra félag er að styrkja sig en auk þess eru ensku liðin á fullum í undirbúningi fyrir komandi tímabil og leika áfram æfingaleiki.

Stöðug fréttaþjónusta verður á Fótbolta.net alla verslunarmannahelgina eins og aðra daga ársins.

Þeir sem ekki hafa kunnáttu á að virkja netið í símann sinn geta haft samband við símafyrirtækin og fengið leiðbeningar um slíkt en flest símtæki í dag bjóða upp á að hægt sé að skoða slíka vefi.
Slapp
banner
banner