Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 30. júlí 2010 11:10
Alexander Freyr Tamimi
Powerade slúðrið: Lampard verður að Hello Kitty
Þá er komið að seinasta Powerade slúðrinu fyrir verslunarmannahelgi og það er augljóst að þeir sem sjá um félagsskiptin eru ekki að fara til Eyja um helgina. Eins og vanalega höfum við tekið saman helsta slúðrið frá BBC og birtum við það hér í íslenskri þýðingu.


Cesc Fabregas fyrirliði Arsenal viðurkennir að það freisti hans ennþá að fara til Barcelona. Lýsti hann seinasta samtali sínu við Arsene Wenger sem því erfiðasta í lífi sínu (Independent)

Roy Hodgson stjóri Liverpool segir að David N'Gog verði um kyrrt á Anfield þrátt fyrir orðróma þess efnis að hann gæti verið á förum (Daily Mirror)

Manchester City á enn langt í land áður en þeir ná samkomulagi við Inter um kaupverðið á Mario Balotelli (Independent)

Bolton ætla að reyna að fá Ivan Klasnic aftur til liðsins en í þetta skiptið til lengri tíma, ekki á láni (Daily Mirror)

Queens Park Rangers er ásamt Coventry að berjast um að fá til sín framherjann Marlon King sem var látinn laus úr fangelsi í gær eftir að hafa afplánað dóm vegna líkamsárásar (Daily Mirror)

West Brom er ásamt Blackburn og Sheffield United að reyna að fá til sín James Beattie framherja Stoke en félagið hefur boðið 1,5 milljónir punda í leikmanninn (The Sun)

Félagsskipti Luke Young til Liverpool frá Aston Villa verða að engu vegna þess að leikmaðurinn var ekki reiðubúinn til að taka 10,000 punda launalækkun á viku (Daily Star)

Mark Hughes, nýráðinn knattspyrnustjóri Fulham, gæti leitað til síns gamla félags Manchester City í sambandi við að fá þá Stephen Ireland, Craig Bellamy og Roque Santa Cruz til Fulham (Daily Mirror)

Hughes gæti einnig boðið í Robert Green markvörð West Ham ef Arsenal býður í Mark Schwarzer (Daily Mail)

Brasilíski framherjinn Robinho mun snúa aftur til Manchester City eftir að viðræður City við brasilíska félagið Santos um framlengingu á lánssamningi hans enduðu án lausnar (The Guardian)

Fimm þúsund óseldir iPodar úr 24 karata gulli með áritun Frank Lampard verða bræddir og úr þeim búnir til iPodar með teiknimyndafígúrunni Hello Kitty í staðinn. Er málið hið vandræðalegasta fyrir Lampard. (The Sun)
Slapp
banner
banner