Erlingur Jack Guðmundsson var öflugur á miðjunni hjá Þrótti þegar liðið lagði Fjölni 2-1 í fyrstu deildinni síðastliðið fimmtudagskvöld. Erlingur Jack er leikmaður 15.umferðar í 1.deildinni.
Aldur: 29 ára
Fyrri félög: Afturelding og ÍR
Lið á Englandi: Manchester United
Uppháhald knattspyrnumaður: Zinedine Zidane
Þróttarar hafa unnið síðustu þrjá leiki og eru í sjöunda sæti fyrstu deildarinnar en liðið stefnir á að komast ennþá ofar í töflunni á næstunni.
,,Við stefnum að reyna að laga aðeins stöðuna eftir þetta slagbak í fyrri hluta móts. Það er aðalmarkmiðið, gamla góða klisjan að hugsa um einn leik í einu, pikka upp stig og mjakast upp töfluna," sagði Erlingur en lítið gekk upp hjá Þrótti í byrjun móts.
,,Ég held að menn séu farnir að þekkja betur inn á hvorn annan núna. Við erum með glænýtt lið í höndunum og það tekur smá tíma að púsla því saman. Þetta eru allt góðir leikmenn í þessu liði og maður er farinn að þekkja þá betur, þá kemur þetta."
Eftir miklar mannabreytingar í vetur settu Þróttarar stefnuna á að endurheimta sæti sitt í Pepsi-deildinni en það markmið verður líklega að bíða betri tíma.
,,Það er kannski erfitt að setja stefnuna upp þegar eru tíu nýjir leikmenn í byrjunarliðinu frá því á síðasta tímabili."
,,Þetta eru allt góðir leikmenn þannig að maður gerði sér vonir um að þetta myndi smella strax. Þegar maður er í Þrótti þá finnst manni að maður eigi að vera í efstu deild."
Erlingur var einn af þeim leikmönnum sem komu til Þróttar í vetur. Erlingur er uppalinn Þróttari en hann kom aftur til félagsins í vetur eftir dvöl hjá ÍR.
,,Það var mjög erfið ákvörðun. Það var mjög gaman að vera í ÍR, frábær hópur og frábær þjálfari. Það er nú einu sinni þannig að ef maður er með Þróttarahjarta þá vill maður vera þar ef að er í boði. Maður segir ekkert nei við því."
Gengi ÍR hefur verið gott í sumar en liðið er í fjórða sætinu. Sér Erlingur eftir því að hafa farið frá þeim?
,,Þeir losuðu sig við sköllótta kallinn á miðjunni og þá fór að ganga vel," sagði Erlingur léttur í bragði.
,,Nei nei, maður tekur ákvarðanir og verður að standa og falla með þeim. Það er mjög ánægjulegt að sjá hvað þeir eru að standa sig vel og ég styð þá náttúrulega í öllum leikjum nema á móti okkur."
Næsti leikur Þróttara er á föstudagskvöldið en þá heimsækir liðið toppplið Leiknis í Breiðholti.
,,Það verður gaman. Þeir eru með hörkulið og það verður gaman að fara í Breiðholtið þegar allt er í blóma þar. Það verður gaman að koma þar og eyðileggja einhverja stemningu vonandi," sagði Erlingur Jack að lokum.
Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 14. umferðar: Gunnar Einarsson (Leiknir R.)
Leikmaður 13. umferðar: Kristján Ari Halldórsson (ÍR)
Leikmaður 12. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 11. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 10. umferðar: Kristján Finnbogason (Grótta.)
Leikmaður 9. umferðar: Viktor Örn Guðmundsson (Víkingur R.)
Leikmaður 8. umferðar: Muamer Sadikovic (Þróttur)
Leikmaður 7. umferðar: Halldór Arnarsson (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)


