Eyjólfur Tómasson, markvörður toppliðs Leiknis, átti stórleik síðasta föstudag þegar liðið vann 2-1 heimasigur á Þrótti. Hann varði í tvígang stórkostlega og kom í veg fyrir að Þróttarar næðu tveggja marka forystu. Leiknisliðið kom síðan til baka og tók öll stigin. Eyjólfur er leikmaður 16. umferðar 1. deildar karla.
Aldur: 21 árs
Fyrri félög: KB
Lið á Englandi: Liverpool
Uppháhalds knattspyrnumaður: Pepe Reina
Leiknir hefur fengið á sig þrettán mörk á Íslandsmótinu í sumar, fæst allra liða í 1. deildinni. Þá hafði liðið aðeins fengið á sig eitt mark á heimavelli áður en Erlingur Jack Guðmundsson kom Þrótturum yfir á föstudaginn.
Leiknir skorar langflest mörk sín í seinni hálfleik og er liðið greinilega í fínu formi.
,,Við vorum að hlaupa og lyfta eins og vitleysingar síðasta vetur undir handleiðslu Kristjáns Harðarsonar frjálsíþróttaþjálfara. Formið hefur skilað inn ansi mörgum stigum í sumar," sagði Eyjólfur.
,,Allt liðið hefur verið frábært varnarlega og Gunni og Dóri verulega góðir í öftustu línu. Menn hafa verið þéttir og fastir fyrir."
Breiðhyltingar eru í toppsæti deildarinnar og munu berjast um sæti í Pepsi-deildinni allt til loka.
,,Ég og fleiri í liðinu erum að spila okkar annað tímabil í deildinni og erum komnir með aukna reynslu. Svo er breiddin meiri og hópurinn þéttari. Við höfum oft byrjað illa en fórum vel af stað í sumar og það skiptir rosalega miklu máli varðandi framhaldið. Hugarfarið er betra og menn ætla sér stærri hluti en við erum ekki komnir með neinar stjörnur í augun."
Eyjólfur er 21. árs og er uppalinn hjá Leikni. Hann varð aðalmarkvörður liðsins í fyrra en áður hafði hann tekið eitt tímabil með varaliði félagsins, KB í 3. deildinni, á meðan hann var í 2. flokki. Þessi ungi markvörður hefur fengið á sig fæst mörk allra í deildinni en ekki fengið tækifæri með U21-landsliðinu.
,,Heilt yfir er ég sáttur við mína frammistöðu í sumar enda náð að halda hreinu ansi oft. En það eru þó nokkur atriði sem ég er ekki alveg sáttur við. Daginn sem ég verð fullkomlega sáttur við mína frammistöðu þá verð ég orðinn helvíti góður. Ég er með mín markmið og það verður bara að koma í ljós hversu langt ég næ í þeim."
Leiknir á leik gegn Gróttu í kvöld en Leiknismenn þurftu heldur betur að hafa fyrir því að vinna fyrri leikinn. ,,Grótta er eitt af tveimur liðum sem hafa afrekað að skora á okkur á heimavelli. Það breytir samt engu, þetta verður eins og hver annar leikur," sagði Eyjólfur en hann hefur notið aðstoðar markmannsþjálfarans Guðmundar Hreiðarssonar.
,,Gummi er maður sem veit alveg um hvað hann er að tala og gefur manni góð ráð. Það er frábært að hafa svona færan markmannsþjálfara."
Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 15. umferðar: Erlingur Jack Guðmundsson (Þróttur)
Leikmaður 14. umferðar: Gunnar Einarsson (Leiknir R.)
Leikmaður 13. umferðar: Kristján Ari Halldórsson (ÍR)
Leikmaður 12. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 11. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 10. umferðar: Kristján Finnbogason (Grótta.)
Leikmaður 9. umferðar: Viktor Örn Guðmundsson (Víkingur R.)
Leikmaður 8. umferðar: Muamer Sadikovic (Þróttur)
Leikmaður 7. umferðar: Halldór Arnarsson (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)

