Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 18. ágúst 2010 09:00
Magnús Valur Böðvarsson
3.deild: Mikil spenna um seinustu sætin í úrslitakeppninni
Magni frá Grenivík er í baráttu við Leikni F.
Magni frá Grenivík er í baráttu við Leikni F.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Ársæll Jónsson er fyrirliði Ægismanna sem er í baráttu við KFK og KFS
Ársæll Jónsson er fyrirliði Ægismanna sem er í baráttu við KFK og KFS
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Fótbolti.net fylgist náið með 3.deild karla eins og öðrum deildum. Á næstu dögum verða leiknir lokaleikirnir í riðlakeppnunum en leikið er í 4 riðlum. Í A riðli, B riðli og D riðli er hörð samkeppni um 2.sætið í riðlinum.

Í A riðli hefur lið Árborgar þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni með því að vinna sigur í riðlinum sannfærandi. Þótt ótrúlegt megi virðast eru þrjú lið sem eiga séns á 2.sæti riðilsins en það eru menn Óla Stefáns Flóventssonar í Sindra frá Höfn í Hornafirði, lið Álftaness og lið Knattspyrnufélags Garðabæjar (KFG).

Það verður að teljast áhugavert að í lokaumferðinni mætast lið Árborgar og lið Sindra, á Selfossi en lið Sindra stendur best að vígi. Sindramenn verða að vinna leikinn til að komast áfram nema Álftanes og KFG skilja jöfn þá nægir þeim jafntefli.
Til að Álftanes komist áfram þurfa þeir að vinna KFG og vona að Sindri vinni ekki Árborg og sama á með um lið KFG að ef þeir vinna Álftanes úti þá fara þeir í úrslitakeppnina ef Sindri tapar stigum.

Í B-riðli er sama spennan í gangi. Þar eiga þrjú lið ennþá þess kost að komast áfram. Berserkir unnu riðilinn sannfærandi og töpuðu aðeins einum leik. Eins og staðan er núna stendur KFS frá Vestmannaeyjum best að vígi með 19 stig. KFK og Ægir koma svo með 17 stig. Ægismenn fá KFS einmitt í heimsókn á Þorlákshöfn. Vinni Ægir verða þeir að treysta á að KFK tapi stigum gegn Þrótti Vogum. Endi leikurinn með jafntefli verða KFS menn að treyst á að KFK tapi stígi eða stigum gegn Þrótti frá Vogum. Séns KFK manna felst sem sagt í því að vinna Þrótt Vogum og treysta á það að KFS vinni ekki sinn leik.

C - riðill Þessi riðill náði í raun og veru aldrei að vera spennandi Tindastóll og KB úr Breiðholti höfðu mikla yfirburði í riðlinum og keppast liðin um hvort liðið endar í 1.sæti og hvort í öðru sæti.

D - riðill Dalvík/Reynir sigraði riðillinn sannfærandi en baráttan um annað sætið er milli Leiknis frá Fáskrúðsfirði og Magna frá Grenivík. Þar stendur Magni betur að vígi með 22 stig en þeir fá Hugins menn í heimsókn í lokaumferðinni. Leiknismenn verða hinsvegar að vinna Einherjamenn og treysta á það að Huginsmenn nái stigi eða stigum gegn Magna.

Í úrslitakeppninni mætast svo:
Leiknir F eða Magni G - KB eða Tindastóll
KB eða Tindastóll - Berserkir
KFK, Ægir eða KFS - Árborg
Álftanes, KFG eða Sindri - Dalvík/Reynir
Slapp
banner