Hólmbert Aron Friðjónsson fór á kostum og skoraði þrennu þegar HK sigraði Njarðvík 4-1 í fyrstu deild karla í fyrradag. Hólmbert er leikmaður sautjándu umferðar hér á Fótbolta.net.
Aldur: 17 ára
Leikir með HK: 17, 4 mörk
Lið á Englandi: Liverpool
Uppháhalds knattspyrnumaður: Cristiano Ronaldo
,,Ég vil þakka fyrir viðurkenninguna og ekki má gleyma afa Hólmbert (Hólmbert Valdimar Friðjónsson) fyrir stuðninginn hann á mikinn þátt í því hvernig mér hefur gengið í fótboltanum."
Hólmbert lék á kantinum fyrri hluta sumars en í síðustu leikjum hefur hann spilað sem fremsti maður.
,,Ég fílaði mig alltaf betur á kantinum og fannst mér ég gera skemmtilegri hluti þar en eftir að ég var settur fram hefur þetta verið upp og ofan. Í síðustu leikjum hef ég verið að standa mig vel og ég kann bara mjög vel við mig frammi. Ég er tilbúinn að spila hvar sem er á vellinum, bara þar sem þjálfarinn hefur not fyrir mig."
Sigurinn á Njarðvík var mjög mikilvægur fyrir HK því liðið náði að losa sig lengra í burtu frá fallbaráttunni.
,,Jú vissulega var þetta mjög mikilvægt, en við strákarnir fórum inn í leikinn með ákveðnina í fyrirrúmi að vinna þennan leik og spiluðum mjög vel, þar af leiðandi náðum við virkilega flottum úrslitum og það léttir af okkur pressunni í augnablikinu."
Hólmbert er einn af nokkrum ungum leikmönnum sem hafa fengið eldskírn sína með liði HK í sumar.
,,Ég er mjög ánægður með uppbygginguna hjá HK því hjá HK er ungum strákum oft gefið tækifæri. Okkur hefur kannski ekki gengið nægilega vel í sumar. Við erum með ungt og sprækt lið og eigum mikið inni en höfum verið óheppnir með meiðsli lykilmanna í sumar."
Hólmbert hefur nokkrum sinnum farið erlendis á reynslu og hann stefnir á að komast í atvinnumennskuna í framtíðinni.
,,Síðastliðið ár hefur alltaf eitthvað verið í gangi og ég hef farið til nokkurra liða en ég er með báðar fætur á jörðinni."
,,Mitt helsta markmið í sumar er að spila sem mest með HK og þroskast sem leikmaður því ég tel mig vera of ungan til að fara út strax. Það er æðsti draumur minn og stefnan að vera atvinnumaður í fótbolta," sagði þessu ungi og efnilegi leikmaður að lokum.
Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 16. umferðar: Eyjólfur Tómasson (Leiknir R.)
Leikmaður 15. umferðar: Erlingur Jack Guðmundsson (Þróttur)
Leikmaður 14. umferðar: Gunnar Einarsson (Leiknir R.)
Leikmaður 13. umferðar: Kristján Ari Halldórsson (ÍR)
Leikmaður 12. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 11. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 10. umferðar: Kristján Finnbogason (Grótta.)
Leikmaður 9. umferðar: Viktor Örn Guðmundsson (Víkingur R.)
Leikmaður 8. umferðar: Muamer Sadikovic (Þróttur)
Leikmaður 7. umferðar: Halldór Arnarsson (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)





