Sigurður Egill Lárusson fór á kostum á vinstri kantinum hjá Víkingi R. þegar liðið sigraði Þrótt 3-0 síðastliðið föstudagskvöld. Sigurður Egill er leikmaður 18.umferðar í fyrstu deildinni.
Aldur: 18 ára
Leikir með Víkingi: 36, 4 mörk
Sigurður Egill hefur bæði leikið á kantinum og í bakverði hjá Víkingi í sumar. Gegn Þrótti lék hann á kantinum og fann sig vel.
,,Trúlega var þetta minn besti leikur í sumar. Enda er ég að spila stöðu núna sem ég tel að henti mér betur."
,,Í gegnum tíðina hef ég spilað annaðhvort á miðjunni eða kantinum með Víking og þekki þær stöður því betur. Engu að síður finnst mér bakvarðarstaðan líka áhugaverð."
Á dögunum datt Sigurður Egill út úr liðinu hjá Víkingi en hann fékk tækifæri í byrjunarliðinu að nýju gegn Þrótti og nýtti það vel.
,,Auðvitað er enginn leikmaður sáttur við að missa stöðu sína í liðinu. Næst þegar maður fær tækifærið reynir maður að nýta það til hins ýtrasta. Við erum með mjög góðan og breiðan hóp þar sem samkeppnin er mikil og jákvæð. Það á enginn öruggt sæti í liðinu og þannig á það vera."
Gengi Víkings var ekki gott í fyrra en allt annað hefur verið uppi á teningnum í sumar og liðið er í öðru sætinu þegar fjórar umferðir eru eftir í fyrstu deildinni. Sigurður Egill telur að nokkrar ástæður séu fyrir þessu breytta gengi.
,,Ég myndi segja að hópurinn væri breiðari og samheldnari en hann var í fyrra. Þá hefur þjálfarinn ekki hikað við að gefa ungu mönnunum í hópnum tækifæri. Síðast enn ekki síst hefur endurkoma reynsluboltans Helga Sig eflt sjálfstraustið og stemmniguna í liðinu."
Næsti leikur Víkings er gegn Gróttu á föstudag en Sigurður Egill er spenntur fyrir toppbaráttunni sem er framundan.
,,Jú svo sannarlega. Miðað við stöðuna í deildinni eru örlögin í okkar höndum. Við getum ekki stólað á aðra í baráttu okkar um að komast upp í úrvalsdeildina. Þar verðum við að stóla á okkur sjálfa og enga aðra."
,,Ég vona að stuðningsmenn félagsins haldi áfram að styðja við bakið á okkur í lokabaráttunni sem framundan er. Stuðningur þeirra er okkur mjög mikilvægur," sagði Sigurður Egill að lokum.
Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 17.umferðar: Hólmbert Aron Friðjónsson (HK)
Leikmaður 16. umferðar: Eyjólfur Tómasson (Leiknir R.)
Leikmaður 15. umferðar: Erlingur Jack Guðmundsson (Þróttur)
Leikmaður 14. umferðar: Gunnar Einarsson (Leiknir R.)
Leikmaður 13. umferðar: Kristján Ari Halldórsson (ÍR)
Leikmaður 12. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 11. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 10. umferðar: Kristján Finnbogason (Grótta.)
Leikmaður 9. umferðar: Viktor Örn Guðmundsson (Víkingur R.)
Leikmaður 8. umferðar: Muamer Sadikovic (Þróttur)
Leikmaður 7. umferðar: Halldór Arnarsson (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)



