Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 01. september 2010 19:17
Alexander Freyr Tamimi
Þróttur upp í Pepsi deild kvenna
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur 3 - 1 Selfoss
1-0 Fríða Þórisdóttir ('3)
1-1 Olga Færseth ('31)
2-1 Rut Þórðar Þórðardóttir ('54)
3-1 Margrét María Hólmarsdóttir ('88)
Rautt spjald: Fríða Þórisdóttir ('78)

Þróttur tryggði sér rétt í þessu farseðilinn í Pepsi deild kvenna ásamt ÍBV eftir að hafa unnið 3-1 sigur á Selfossi í Laugardalnum. Fyrri leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli á Selfossi.

Fríða Þórisdóttir kom Þrótti á bragðið strax á 3. mínútu en markaskorarinn Olga Færseth náði síðan að jafna metin fyrir Selfoss þegar rúmur hálftími var liðinn af leiknum.

Rut Þórðar Þórðardóttir kom Þrótti aftur yfir í seinni hálfleiknum og Margrét María Hólmarsdóttir gulltryggði sigurinn rétt fyrir leikslok.

Þess á milli fékk Fríða sitt annað gula spjald fyrir að handleika knöttinn inni í vítateig Þróttar. Vítaspyrna var dæmd en Selfyssingar skutu framhjá.

Það verða því Þróttur og ÍBV sem munu spila í Pepsi deild kvenna að ári.
Slapp
banner
banner