,,Þetta var bara skelfilegt, maður er eiginlega bara andlaus á eftir. En svona er fótboltinn, við bara kláruðum ekki sénsana okkar og ég myndi segja að ef við hefðum jafnað á þessu víti þá hefðu okkur verið flestir vegir færir en það datt ekkert fyrir okkur," sagði Helena Ólafsdóttir þjálfari kvennaliðs Selfoss sem tapaði síðari undanúrslitaleiknum við Þrótt um sæti í Pepsi-deild kvenna á næstu leiktíð og því ljóst að liðið verður áfram í 1. deild.
Leikurinn var gríðarlega spennandi þegar á leið og Þróttur missti mann af velli með rautt spjald þegar 12 mínútur voru eftir og Selfoss fékk víti um leið. Með því að nýta það hefðu þær komist í 2-2 og því komnar áfram samanlagt 3-3 með fleiri mörk skoruð á útivelli. Það tókst hinsvegar ekki.
,,Ég get ekki verið annað en ánægð með stelpurnar, þetta er nánast allt uppalið lið og nánast allt frá Selfossi nema Olga og Anna. Við erum með hörkuefnilegt lið go verðum að byggja ofan á. Þetta er rosalega sárt en nú sjá þær hvernig er að vinna, og það er svona. Þetta er munurinn á milli en framtíðin er stelpnanna okkar."
Nánar er rætt við Helenu í sjónvarpinu hér að ofan.
























