,,Ég er mjög sáttur, þrjú stig eru þrjú stig. Við þurftum virkilega að hafa fyrir þessu stigum þannig að ég er mjög sáttur," sagði Jóhannes Karl Sigursteinsson þjálfari Breiðabliks eftir 1-0 sigur liðsins á Aftureldingu í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
Breiðablik skaust með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar en liðið er fjórum stigum á eftir Val þegar þrjár umferðir eru eftir.
,,Við vonum ennþá. Við ætlum að vera í bakinu á Val eins lengi og við getum og vona að þær misstígi sig."
,,Þetta voru mjög mikilvæg stig í baráttunni um fyrsta og annað sætið og þrjú stig voru mjög mikilvæg fyrir okkur."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















