Heimild: Sky
Jonathan Woodgate, varnarmaður Tottenham, mun ekkert komu við sögu með liðinu fyrir áramót en þetta varð ljóst eftir að hann var ekki valinn í 25-manna leikmannahóp í ensku úrvalsdeildinni.
Woodgate hefur átt við þrálát nárameiðsli að stríða en hann lék einungis þrjá leiki á síðasta tímabili og er nú á leið í aðgerð til að reyna að bjarga ferlinum.
Nýjar reglur í ensku úrvalsdeildinni kveða á um að félög þurfa að tilkynna 25 manna leikmannahóp sem ekki er hægt að breyta fyrr en eftir áramót.
Hins vegar þurfa leikmenn 21 árs og yngri ekki að fara á 25 manna listann og því eru leikmenn eins og Gareth Bale og Giovani dos Santos ekki á listanum.
Listinn hjá Tottenham: Benoit Assou-Ekotto, Sebastian Bassong, David Bentley, Vedran Corluka, Peter Crouch, Carlo Cudicini, Heurelho Gomes, Michael Dawson, Jermain Defoe, William Gallas, Tom Huddlestone, Alan Hutton, Jermaine Jenas, Younes Kaboul, Robbie Keane, Ledley King, Niko Kranjcar, Aaron Lennon, Luka Modric, Kyle Naughton, Jamie O'Hara, Wilson Palacios, Roman Pavlyuchenko, Stipe Pletikosa, Rafael van der Vaart.



