Mjölnismenn, stuðningsmenn Þórs, ætla að hittast og hita upp fyrir grannaslaginn gegn KA í kvöld.
Upphitunin verður í setrinu, félagsheimili Mjölnismannar og hefst klukkan 15:30 og stendur fram að leik.
Þar munu Þórsarar hrista hópinn saman og labba svo fylktu liði á völlinn.
Haraldur Logi Hringsson hefur búið til skemmtilegt upphitunarmyndband fyrir þennan grannaslag.
Smelltu hér til að sjá upphitunarmyndbandið



