Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. september 2010 07:48
Karitas Þórarinsdóttir
Sænska kvennadeildin: Kristianstad í ótrúlegri rússíbanaferð
Kvenaboltinn
Margrét Lára skoraði.
Margrét Lára skoraði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslendingaliðið Kristianstad ferðaðist til Malmö í gær en leikurinn átti heldur betur eftir að koma á óvart.

LdB FC Malmö 5-3 Kristianstads DFF
0-1 Margrét Lára Viðarsdóttir (’12)
0-2 Susanne Moberg (’14)
1-2 Manon Melis (’23)
1-3 Sofie Anderson (’34)
2-3 Therese Sjögran (’52)
3-3 Manon Melis (’59)
4-3 Pavlina Scansa (’64)
5-3 Linda Forsberg (’75)

Það má með sanni segja að Malmö stúlkur sýndu í þessum leik afhverju þær eru enn ósigraðar í deildinni.

Flestir töldu að leikurinn yrði auðveldur fyrir leikmenn Malmö en annað kom á daginn.

Það var engin önnur en Margrét Lára Viðarsdóttir sem kom liði sýnu yfir með skoti frá teig, beint í mark andstæðinganna.

Áhorfendur og áhangendur Malmö vissu ekki hvað beið þeirra, en stuttu seinna skoraði Susanne Moeberg annað mark Kristanstads.

Greinilegt var að lærisveinar Elísarbetu Gunnarsdóttur mættu til leiks með enga virðingu fyrir toppliðinu og ætluðu að jarða þær á heimavelli.

Malmö stúlkur náðu þó að klóra í bakkann en þar var að verki markavélin Manon Melis.

Kristianstads stúlkur voru ekki á því að fara leggja árar í bát heldur gáfu í og 10 mínútum fyrir hálfleik skoraði Sofie Anderson fyrir Kristianstad.

Glæsilegur fyrri hálfleikur hjá Kristianstad og þær gátu borið höfuð hátt inn í búningsklefann.

Þegar seinni hálfleikur byrjaði bjóst enginn við því sem átti eftir að koma.

Malmö stúlkur, með Þóru Helgadóttur í markinu sýndu og sönnuðu hvers vegna þær spila í einu besta félagsliði heims í dag.

Þær fóru gjörsamlega á kostum og skoruðu 4 mörk og unnu leikinn á ótrúlegan.

Leikurinn endaði því 5-3 fyrir Malmö, en þær sitja sem fastast með rassinn á toppnum.
Slapp
banner
banner