Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. september 2010 17:13
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Bramble stefnir á Evrópusæti
Titus Bramble leikmaður Sunderland segir að félagið geti endaði í Evrópusæti á þessari leiktíð.

Þessi 28 ára gamli miðvörður hefur litið vel út í byrjun tímabilsins eftir komu sína frá Wigan.

,,Við erum með marga góða leikmenn hérna og ef við erum heppnir með meiðsli þá sé ég ekki ástæðuna af hverju við ættum ekki að geta barist um Evrópusæti," sagði Bramble.

,,Að vinna lið eins og Manchester City hjálpar öllum, svona frammistaða og úrslit koma sjálfstraustinu í gang."

,,Við erum með grunn til að byggja á og vonandi getum við farið til Wigan eftir landsleikina og náð í góð úrslit þar."

Slapp
banner