Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. september 2010 17:26
Þórður Már Sigfússon
Heimild: Aftenbladet | TV2 
Norðmenn kokhraustir í þarlendum fjölmiðlum
Brede Hangeland krefst sigurs gegn Íslendingum.
Brede Hangeland krefst sigurs gegn Íslendingum.
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
,,Þegar þú ert í riðli með Portúgal, Danmörku, Kýpur og Íslandi, segir það sig sjálft að þú getur ekki byrjað á því kasta burt stigum gegn eyríki með 300.000 íbúum, sem er auk þess lægst skrifaðasta liðið í riðlinum,“ segir í einni frétt sem birtist í Aftenbladet í dag.

Fréttin er í takt við þann þangagang sem Norðmenn hafa í aðdraganda landsleiksins gegn Íslendingum á morgun og er eins og þjóðin beinlínis búist við sigri.

Brede Hangeland, miðvörður Fulham, er sömuleiðis bjartsýnn á sigur á morgun.

,,Við mætum Íslensku liði með mikinn kraft og vilja en ég hef fulla trú á því að við byrjum riðilinn með sigri,“ sagði Hangeland í samtali við norska fjölmiðla.

,,Ég ber virðingu fyrir íslenska landsliðinu og þeim úrslitum sem það hefur náð en ef við ætlum á EM þurfum að sækja meira en eitt stig til Íslands.“

Jon Knudsen, markvörður Stabæk mun standa á milli stanganna á morgun, og hann er líkt og aðrir Norðmenn kokhraustur og segist ekki hafa miklar áhyggjur af íslensku leikmönnunum, þ.á.m. samherja sínum hjá Stabæk, Veigari Páli Gunnarssyni.

,,Veigar er góður leikmaður en ég mun ekki missa nætursvefn við þá tilhugsun að þurfa að mæta honum,“ sagði Knudsen í samtali við norsku sjónvarpsstöðina TV2.
Slapp
banner