Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. september 2010 18:26
Hafliði Breiðfjörð
Rúrik Gíslason æfði ekki með í gær vegna veikinda
Rúrik á æfingu íslenska liðsins í  fyrrakvöld.
Rúrik á æfingu íslenska liðsins í fyrrakvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Jóhannesson þjálfari íslenska landsliðsins segir að Rúrik Gíslason framherji liðsins hafi misst af æfingu liðsins í gær vegna veikinda og þá sé ljóst að Brynjar Björn Gunnarssson missi af leiknum gegn Noregi á morgun vegna meiðsla.

,,Rúrik Gíslason hefur verið lasinn. Hann var veikur úti í Danmörku og kom hingað heim ekki alveg heill. Það var smá hiti í honum og hann æfði ekki með okkur ígær en ætlar að æfa núna. Hann hefur verið í smá veikindum," sagði Ólafur á fréttamannafundi íslenska landsliðsins nú undir kvöld. Eins og kom fram hér á Fótbolta.net fyrr í kvöld hefur Grétar Rafn Steinsson ekki beitt sér að fullu en verður með í leiknum á morgun en Brynjar Björn verður ekki með.

,,Brynjar Björn er off, hann verður ekki með í þessum leik. Hann er meiddur og mjög tæpt að hann verði með í Danmörku. Að öðru leitir er hópurinn fínn og allir 100% heilir." sagði Ólafur ennfremur en mun hann kalla einhvern inn í hópinn.

,,Ég er ekki alveg ákveðinn í því en ég mun taka stöðuna á föstudagskvöldið eftir þennan leik hérna, hvernig ástandið á mönnum verður. Ef það veður svo að það verða 1-2-3 í burtu þá mun ég sækja mér leikmenn en ef það verður aðeins einn þá er ég ekkert viss um að ég sæki mann. Ég mun vega það og meta."
Slapp
banner