Matthias Freyr Matthiasson skrifar frá Danmörku
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari Íslands sat fyrir svörum á blaðamannafundi á Parken í gærkvöldi. Tilefnið var auðvitað landsleikur Danmerkur og Íslands sem fram fer á Parken í kvöld kl:1815 að íslenskum tíma. Ólafur var meðal annars spurður út í númerakerfi á búningum landsliðsins, en umræður hafa verið um hvort að það sé komið fast númerakerfi í landsliðinu í fyrsta sinn.
,,Nei ekki svo að ég viti" svaraði Ólafur. Við svörum tók þá Ómar Smárason fjölmiðlafulltrúi KSÍ.
,,Kannski að ég geti útskýrt þetta. En það er þannig fyrir hvern leik fyrir sig. Þegar það er tilkynntur hópurinn að þá er tilkynnt um númer leikmanna í því verkefni. Þannig að þeir sem voru í hópnum í þessu tveimur leikjum, halda númerunum í þeim tveim leikjum"
Við tók síðan Ólafur aftur og kláraði að svara spurningunni
,,Ég hef aldrei skipt mér að því hverjir eru númer hvað, mér er alveg sama. Það var einhver blaðamaður, kjötbollan á fréttablaðinu sem var með einhverja sniðuga útgáfu af númerum. Frábært!"
Hægt er að sjá þessi svör Ólafs í sjónvarpinu hér að ofan























