Matthias Freyr Matthiasson skrifar frá Danmörku
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari Íslands var spurður að því á blaðamannafundinum sem haldin var á Parken í gær vegna leiks Danmerkur og Íslands sem fram fer í kvöld klukkan 18:15 að í ljósi þess að Laurent Blanc landsliðsþjálfari Frakka skyldaði leikmenn sína til að syngja með þjóðsöngnum, hvaða skoðun Ólafur hefði á því hvort að menn ættu að syngja með eða ekki.
,,Ég hef nú svosem ekki skoðun á því. Ég verð að segja þér alveg eins og er að það gæti jafnvel fælt fólk frá ef að sumir færu að syngja," sagði hann.
,,En við auðvitað höldum utan um hvorn annan, þjóðsöngurinn okkar er fallegur og langur en ég hef ekki lagt það til að menn syngji hann. "

























