Matthias Freyr Matthiasson skrifar frá Danmörku
Rúrik Gíslason leikmaður Íslands var skiljanlega virkilega svekktur eftir tap 1 - 0 tap gegn Danmörku en markið kom á lokamínútunni.
,,Þetta er eiginlega bara hlægilega svekkjandi. Við lögðum okkur allir virkilega vel fram og áttu svo sannarlega skilið meira en það sem við fengum út úr leiknum"
Rúrik var felldur inn í teig hjá Dönum í seinni hálfleik. Var það vítaspyrna?
,,Nei ég viðurkenni það nú að það hefði verið strangur dómur, hann snerti mig og auðvitað hafa verið dæmd víti fyrir minna en ég ætlaði að sækja þetta víti."
Sagði Rúrik í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn. Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu hér að ofan.






















