Hörður Snævar Jónsson skrifar frá Danmörku
,,Okkur fannst við spila mjög skynnsaman leik og vorum mjög agaðir," sagði Sölvi Geir Ottesen fyrirliði Íslands í samtali við Fótbolta.net eftir 1-0 tap gegn Dönum í kvöld.
Ísland var skipulagt í leiknum en eina mark leiksins kom undir lok seinni hálfleik.
,,Við létum þá spila boltanum á milli sín og vorum mjög aftarlega á vellinum."
,,Við biðum eftir þeim og í seinni hálfleik fáum við sjálfstraust. Okkur leið eins og við gætum skorað mark alveg eins og þeir."
Nánar er rætt við Sölva í sjónvarpinu hér að ofan.























