Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 08. september 2010 16:06
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Yuri Zhirkov íhugar stöðu sína hjá Chelsea
Yuri Zhirkov, leikmaður Chelsea, segist vera að íhuga framtíð sína hjá félaginu. Þessi 27 ára gamli leikmaður getur spilað bæði í vinstri bakverði og á kantinum en hann er á eftir Ashley Cole og Florent Malouda í röðinni eins og staðan er núna.

Talið er að Spartak Moskva og Zenit St. Pétursborg hafi áhuga á Zhirkov en hann ætlar að skoða sín mál í vetur.

,,Ég mun klárlega fá tækifæri á næstu mánuðum og ég mun reyna að nota það vel," sagði Zhirkov.

,,Í vetur veltur þetta síðan allt líklega á hversu mörg tækifæri ég fæ og hvernig ég nota þau. Við erum að spila frábærlega í augnablikinu og að komast fram fyrir Malouda og Cole er erfitt."

,,Allir skilja samkeppnina, þegar þú ert á bekknum þá verðuru þar í langan tíma, en ég mun klárlega fá tækifæri."

Slapp
banner