Heimild: Heimasíða KSÍ
UEFA tilkynnti í dag hvernig raðað er í styrkleikaflokka þegar dregið verður í umspilinu fyrir úrslitakeppni EM hjá U21 karla. Dregið verður á föstudag í Herning í Danmörku og hefst drátturinn kl. 10:30 að íslenskum tíma.
Ísland er í B flokki en sjö þjóðir skipa hvorn flokk og geta þjóðir í sama flokki, ekki dregist saman. Eins getur Ísland ekki dregist gegn Tékklandi þar sem þessar þjóðir voru saman í riðli í undankeppninni. Ísland getur heldur ekki mætt stórum þjóðum eins og Englandi og Spáni.
Farið var eftir árangri í tveimur síðustu keppnum þegar raðað var í flokka en einungis sigurvegarar riðlanna gátu lent í A - flokki.
A - flokkur:
Svíþjóð
Holland
Tékkland
Rúmenía
Ítalía
Króatía
Skotland
B flokkur:
Grikkland
Sviss
Úkraína
Spánn
England
Hvíta Rússland
Ísland

