Heimild: Sporting Life
Owen Coyle, stjóri Bolton, óttast að það sé ekki langt í að eitthvað stórt félag muni kaupa varnarmanninn Gary Cahill frá félaginu.
Cahill kom til Bolton frá Aston Villa á fimm milljónir punda í janúar 2008.
Síðan þá hefur Cahill leikið frábærlega og unnið sér inn sæti í enska landsliðinu en hann er núna metinn á í kringum 17,5 milljónir punda.
,,Sá dagur mun koma, ég vona að það verði ekki janúar, að Gary Cahill verður of stór fyrir þetta félag miðað við upphæðirnar sem við erum að tala um," sagði Coyle.
,,Ég hef fulla trú á að hann geti spilað fyrir eitt af topp fjórum félögunum."
,,Ef að sá dagur kemur þá mun Gary fara með leyfi okkar því hann hefur verið frábær fyrir þetta fótboltafélag."



