Heimild: BBC
Titus Bramble segir að Steve Bruce stjóri Sunderand hafi verið aðalástæða þess að hann ákvað að ganga til liðs við félagið í sumar.
Bramble, sem er 29 ára, kom til Sunderland frá Wigan í sumar en hann lék undir stjórn Bruce þar á sínum tíma.
,,Hann er frábær, ég nýt þess að vinna með honum," sagði Bramble.
Á sínum tíma lék Bramble með erkifjendum Sunderland í Newcastle en hann segir það ekki hafa truflað mikið við félagaskiptin í sumar
,,Það kom upp í hugann að ég er fyrrum leikmaður Newastle United en það var enginn efi, ég hoppaði á tækifærið."


