Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 08. september 2010 16:22
Gunnar Gunnarsson
Heimild: Soccernet 
Stuart Pearce vill fá sitt sterkasta lið í U-21 árs umspilið
lokakeppni Evrópumótsins í Danmörku næsta sumar í húfi
U-21 árs landslið Englendinga varð að gera sér að góðu 2. sætið í 9. riðli á eftir Grikkjum í riðlakeppni Evrópumótsins í þessum aldursflokki. England varð að vinna tvo síðustu leiki sína í riðlakeppninni til að eiga möguleika á að komast áfram og það tókst þeim með 1-0 sigri á Portúgal og 3-0 sigri gegn Litháen.

England komst áfram líkt og Spánn, Hvíta-Rússland og Ísland en þessar þjóðir voru með bestan árangur í 2. sæti. Stuart Pearce þjálfari enska liðsins ætlar að þrýsta á að tefla fram sínu sterkasta mögulega liði í umspilsleikjunum sem framundan eru 9. og 13. október.

,,Ég mun ræða við Fabio Capello og gefa honum þau nöfn sem ég vil fá í mitt lið. Á þessum tímapunkti þá kem ég væntanlega ekki til með að fá bæði Kieran Gibbs og Jack Wilshere. Ég verð kannski ósvífinn og bið um Theo Walcott," sagði Stuart Pearce og hélt áfram.

,,Þegar þessir strákar hittust fyrir 10 dögum þá vissum við að þetta væru tveir úrslitaleikir sem yrðu að vinnast annars værum við úr leik. Það er hörku álag að spila undir slíkri pressu. Við unnum fyrri leikinn sem var örlítið auðveldari að því leiti að andstæðingurinn sótti gegn okkur líka.

,,Við vissum að leikmenn Litháen myndu sitja vel tilbaka og það yrði mikilvægt að skora snemma en okkur tókst það því miður ekki. Frammistaðan var ekki frábær en við spiluðum mun betur í seinni hálfleik og tókst að landa sigri. Ég er ánægður með að við höfum náð takmarkinu að komast í umspil og gera atlögu að því að komast í lokakeppnina,"
sagði Stuart Pearce að lokum.
Slapp
banner
banner