Heimild: Reuters
Aleksander Hleb mun ekki ná að leika sinn fyrsta leik með Birmingham þegar liðið mætir Liverpool um helgina.
Hleb fór meiddur af velli í landsleik Hvíta-Rússlands og Rúmeníu í gærkvöldi.
,,Meiðsli hans eru ekki of alvarleg en Hleb sagði við mig að hann mun pottþétt ekki spila á sunnudag," sagði Bernd Stange þjálfari Hvít-Rússa.
,,Hann ætti að geta snúið til baka einhverntímann í næstu viku. Hann þarf hvíld og meðferð hjá sjúkraþjálfara til að verða 100% heill."
Hleb kom til Birmingham á láni frá Barcelona á dögunum en hann hefur ekki náð að finna sig hjá spænska félaginu.



