Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 08. september 2010 18:00
Hafliði Breiðfjörð
Víkingar stefna á rútuferð til Akureyrar á KA leikinn
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Knattspyrnudeild Víkings og Berserkir standa fyrir rútuferð á leik KA og Víkings á Akureyri næstkomandi laugardag.

Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Víkinga því það gæti jafnvel farið svo að úrslitin í deildinni ráðist í þessum leik.

Því vilja Víkingar taka stóran hóp stuðningsmanna með sér norður og bjóða upp á rútuferð.

Rútan leggur af stað úr Víkinni klukkan 08:00 á laugardaginn og er ljóst að mikið fjör verður á leiðinni. Haldið verður heim á leið strax að leik loknum.

Miðinn í rútuna fram og til baka ásamt miða á leikinn kostar einungis kr. 2.500,-

Tekið er á móti bókunum í tölvupósti á netfangið [email protected]

Einungis eru 50 sæti í boði.
Slapp
banner