Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 09. september 2010 06:00
Magnús Már Einarsson
Mjölnismenn með hópferð á leik HK og Þórs
Mynd: Mjölnismenn
Mjölnismenn, stuðningsmannafélag Þórs, stendur fyrir hópferð á leik liðsins gegn HK á laugardag.

Lagt verður af stað klukkan 07:00 frá Hamri og kostar einungis 1000 krónur.

45 manns hafa skráð sig í ferðina en engin fjöldatakmörk eru á það hversu margir geta farið með.

Þeir sem hafa áhuga á að slást í för með er bent á að að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í síma 863-4560 (Óðinn).

Upphitun verður svo á Players fyrir alla Þórsara klukkan 12:15 og verða ýmsar uppákomur en það verður betur auglýst síðar.

Slapp
banner
banner