Heimild: Reuters
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, segist vera nánast orðinn góður af ökklameiðslunum sem hann hefur verið að glíma við.
Ronaldo meiddist gegn Mallorca undir lok síðasta mánaðar og búist var við að hann yrði frá í fjórar vikur.
Ronaldo missti af landsleikjum með Portúgal á dögunum en nú býst hann við að geta snúið aftur gegn Ajax í Meistaradeildinni í næstu viku.
,,Mér líður betur og við munum sjá hvernig þetta þróast," sagði Ronaldo í gær.
,,Ég er ekki orðinn alveg heill en ég er nánast 100%. Ég mun snúa til baka eins fljótt og hægt er, kannski get ég byrjað að æfa með hópnum eftir tvo daga."




