Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 09. september 2010 07:28
Magnús Már Einarsson
Heimild: Soccernet 
Benni McCarthy búinn að losa sig við sjö kíló
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Benni McCarthy, framherji West Ham, er búinn að losa sig við sjö kíló á síðustu þremur vikum.

Þessi 32 ára gamli leikmaður bætti vel á sig í sumar og forráðamenn West Ham skipuðu honum að fara í megrun á dögunum ef að hann vildi fá laun sín útborguð.

McCarthy tók sig á og hann gæti mögulega komið við sögu þegar West Ham mætir Stoke um aðra helgi.

,,Allir hjá félaginu eru hæstánægðir með að Benni hafi æft mjög vel síðan hann kom aftur til félagsins," sagði David Sullivan annar af eigendum West Ham.

,,Hann hefur misst næstum því sjö kíló og við erum vongóðir um að hann muni stimla sig rækilega inn á þessu tímabili."
Slapp
banner
banner