,,Þetta var svolítið svekkjandi því að við fengum dauðafæri undir blálokin. Þetta var stórkostleg skemmtun," sagði Einar Örn Einarsson eftir 2-2 jafntefli Dalvíkur/Reynis og KB í úrslitakeppni þriðju deildarinnar í kvöld.
Einar Örn stýrði liði KB af hliðarlínunni í kvöld í fjarveru Óla Halldórs Sigurjónssonar sem tók út leikbann.
KB tapaði fyrri leiknum í Breiðholti 1-0 og missti því af sæti í annarri deild þrátt fyrir góða baráttu í kvöld.

,,Við mættum með blóðbragð í munninum og ætluðum að byrja að tyggja um leið og leikurinn byrjaði. Við vorum þyrstir, við vissum að við þyrftum bara þetta eina mark til að þetta yrði jafn leikur."
,,Markmiðið var að fara upp. Fyrst tókum við eitt skref í einu og ætluðum að fara í úrslitakeppnina. Síðan vorum við ákveðnir í að fara upp, við náðum því ekki í þetta skipti en komum ákveðnir til leiks næsta sumar."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.