Heimild: AFP
Carlos Tevez, framherji Manchester City, gæti hætt að leika með argentínska landsliðinu áður en kemur að HM 2014 í Brasilíu.
Þessi 26 ára gamli leikmaður skoraði í 4-1 sigri Argentínu gegn heimsmeisturum Spánverja í fyrrakvöld.
,,Sannleikurinn er sá að ég veit ekki hvort ég verði með landsliðinu til ársins 2014," sagði Tevez.
,,Því að ég gat undirbúið mig vel fyrir Suður-Afríku þá mun ég ekki geta gert slíkt hið sama fyrir 2014."
,,Ég er ekki viss hvort ég hafi eitthvað meira til að gefa landsliðinu."



