Þá er komi að slúðrinu á þessum fína fimmtudegi en það er lítið í gangi í slúðurheiminum þessa dagana.
Jose Mourinho stjóri Real Madrid er svekktur með hafa ekki fengið Dider Drogba og ætlar að fá Emmanuel Adebayor í janúar. (Daily Star)
Borussia Dortmund hefur áhuga á að fá Steven Pienaar er samningsviðræður við Everton ganga illa. (talkSport)
Atletico Madrid fylgist með gangi mála hjá David Silva leikmanni Manchester City á meðan hann aðlagast enska boltanum. (Daily Mail)
Doncaster hefur áhuga á að fá David Healy á láni frá Sunderland. (Daily MIrror)
Notthingam Forest hefur líka áhuga á að fá Healy. (talkSport)
Jermaine Pennant sem er á láni hjá Stoke vill ganga endanlega í raðir félagsins. (The Sun)
Simon Grayson stjóri Leeds gæti fengið Amdy Faye til félagsins en hann er án félags. (Daily MIrror)
Jermaine Defoe gæti verið frá í átta vikur eftir að hafa meiðst á ökkla með Englandi. (Daily Mirror)
Sol Campbell leikmaður Newcastle segist enn hafa það sem þarf til að spila á meðal þeirra bestu. (Daily Telegraph)




