Vefurinn Fótbolti.net var fyrst opnaður þann 15. apríl árið 2002 og verður því 11 ára í ár. Vefurinn hefur stóraukið á vinsældir sínar allt frá fyrsta degi en  í dag lesa um 70 þúsund gestir efni vefsins vikulega.  Flettingar eru um 1,8 milljón svo hver lesandi les um það bil 26 fréttir á viku hverri. Þær tölur gera vefinn meira lesinn en íþróttafréttir á helstu samkeppnisvefjunum, mbl.is, Vísi.is og 433.is til samans.

Við vefinn starfa fjórir starfsmenn í fullu starfi auk fjölda starfsmanna í hlutastarfi.  Yfir sumartímann nær starfsmannafjöldinn hæst í kringum 75 starfsmenn.  Hér að neðan má sjá yfirlit yfir helstu starfsmenn.

Hafliði Breiðfjörð stofnaði vefinn og rekur enn í dag.  Hlutafélagið Fótbolti ehf er utan um rekstur vefsins en það að öllu leyti er í eigu starfsmanna vefsins. Hafliða (95%) og Magnúsar Más Einarssonar ritstjóra (5%)

Fótbolti.net
Fótbolti ehf
Kt: 600907-0180
Stórhöfða 15
112 Reykjavík
Sími: - GSM: 894 9200
Netfang: fotbolti@fotbolti.net