ÍA
2
1
Leiknir R.
Eggert Kári Karlsson
'38
1-0
Marko Andelkovic
'84
2-0
2-1
Halldór Kristinn Halldórsson
'93
26.07.2015 - 19:15
Norðurálsvöllurinn
Pepsi-deild karla 2015
Aðstæður: Völlurinn mjög flottur og góðar aðstæður
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 1016
Maður leiksins: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Norðurálsvöllurinn
Pepsi-deild karla 2015
Aðstæður: Völlurinn mjög flottur og góðar aðstæður
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 1016
Maður leiksins: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
Arnar Már Guðjónsson
Ármann Smári Björnsson
Arnór Snær Guðmundsson
2. Þórður Þorsteinn Þórðarson
10. Jón Vilhelm Ákason
19. Eggert Kári Karlsson
('62)
23. Ásgeir Marteinsson
27. Darren Lough
32. Garðar Gunnlaugsson
('81)
Varamenn:
13. Arsenij Buinickij
('62)
14. Ólafur Valur Valdimarsson
('81)
20. Gylfi Veigar Gylfason
31. Marko Andelkovic
('81)
Liðsstjórn:
Páll Gísli Jónsson
Teitur Pétursson
Ingimar Elí Hlynsson
Gul spjöld:
Darren Lough ('39)
Rauð spjöld:
Skýrslan: Marko gerði gæfumuninn fyrir Skagamenn
Hvað réði úrslitum?
Tvöfalda skiptingin hjá Gunnlaugi Jónssyni, þjálfara ÍA, gerði gæfumuninn í leiknum. Ólafur Valur Valdimarsson og Marko Andelkovic komu inn á og Marko skoraði einungis tveimur mínútum eftir að hann kom inn á. Marko og Ólafur Valur áttu svo virkilega góða innkomu og frískuðu upp á sóknarleik ÍA þegar þess þurfti.
Bestu leikmenn
1. Þórður Þorsteinn Þórðarson (ÍA)
Þórður Þorsteinn átti virkilega góðan leik í dag. Hann átti sinn þátt í fyrra markinu og lagði það seinna upp. Hann var einnig öflugur í vörninni og bjargaði frábærlega í eitt skiptið þegar Leiknismenn hefðu átt að skora jöfnunarmarkið.
2. Ármann Smári Björnsson (ÍA)
Ármann Smári var mjög traustur í hjarta varnar ÍA. Hann skallaði nær alla bolta í burtu og bjargaði ennfremur oft með góðum tæklingum.
Atvikið
Rangstaðan sem var dæmd á Leiknismenn á 78. mínútu þegar Danny Schreurs kemst einn í gegnum vörn ÍA og skorar með því að vippa boltanum yfir Árna Snæ í markinu. Leiknismenn voru brjálaðir yfir ákvörðun aðstoðardómarans þar sem þetta hefði verið jöfnunarmark Leiknis en hann stóð við sína ákvörðun og skömmu síðar kláruðu Skagamenn leikinn.
|
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Skagamenn eru komnir úr fallbaráttunni í bili og eru í áttunda sæti deildarinnar, sex stigum frá fallsæti. Þeir halda áfram góðu gengi sínu og hafa unnið sér inn sjö stig í síðustu þremur leikjum.
Leiknismenn halda áfram miklu ströggli í fallbaráttunni. Þetta var leikur sem þeir máttu helst ekki tapa en það þýðir að þeir eru ennþá í fallsæti, stigi á eftir Eyjamönnum.
Vondur dagur
Þetta var ekki sérstaklega góður leikur hjá sóknarmönnum Leiknis. Þeir áttu vissulega sína spretti, sérstaklega í seinni hálfleik, en sjaldan náðu þeir að ógna vörn ÍA svo einhverju næmi.
Dómarinn - 7.0
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson átti ágætan leik og dæmdi þennan leik af festu.
|
Byrjunarlið:
Óttar Bjarni Guðmundsson
Eyjólfur Tómasson
Halldór Kristinn Halldórsson
3. Eiríkur Ingi Magnússon
7. Atli Arnarson
8. Sindri Björnsson
('55)
9. Kolbeinn Kárason
('55)
11. Brynjar Hlöðversson
15. Kristján Páll Jónsson (f)
('80)
21. Hilmar Árni Halldórsson
23. Gestur Ingi Harðarson
Varamenn:
1. Arnar Freyr Ólafsson (m)
5. Edvard Börkur Óttharsson
19. Danny Schreurs
('55)
27. Magnús Már Einarsson
30. Charley Roussel Fomen
Liðsstjórn:
Ólafur Hrannar Kristjánsson (Þ)
Elvar Páll Sigurðsson
Gul spjöld:
Eiríkur Ingi Magnússon ('73)
Rauð spjöld: