Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Valur
4
0
Selfoss
Patrick Pedersen '25 1-0
Patrick Pedersen '65 2-0
Patrick Pedersen '90 3-0
Tómas Óli Garðarsson '92 4-0
03.06.2015  -  19:15
Vodafonevöllurinn
Borgunarbikar karla
Dómari: Garðar Örn Hinriksson
Byrjunarlið:
1. Ingvar Þór Kale (m)
3. Iain James Williamson ('76)
4. Einar Karl Ingvarsson
8. Kristinn Ingi Halldórsson ('70)
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson ('76)
14. Gunnar Gunnarsson
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
23. Andri Fannar Stefánsson

Varamenn:
33. Anton Ari Einarsson (m)
6. Daði Bergsson ('70)
13. Bjarki Steinar Björnsson
14. Haukur Ásberg Hilmarsson ('76)
16. Tómas Óli Garðarsson ('76)
19. Marteinn Högni Elíasson

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson

Gul spjöld:
Gunnar Gunnarsson ('51)

Rauð spjöld:
@arnarmagnusson Arnar Helgi Magnússon
Skýrslan: Valsmenn komust þæginlega áfram
Hvað réði úrslitum?
Áræðni Valsmanna skilaði þeim í næstu umferð. Voru með yfirhöndina allann leikinn og Selfyssingar voru aldrei líklegir. Þolinmæðis vinna hjá Valsmönnum en eftir mark númer tvö gátu þeir skipt niður um gír og losað um stressið. Selfyssingar lögðu sig þó alla fram í verkið og hlupu mikið en gæðin hjá Valsmönnum einfaldlega of mikil.
Bestu leikmenn
1. Patrick Pedersen
Skoraði 3 mörk í leiknum og var sífellt ógnandi þegar hann komst í boltann. Fyrra markið hans var frábært einstaklings framtak þar sem hann skýtur fyrir utan teig Selfyssinga og boltinn endaði inní markinu. Seinna markið kom hann með gott hlaup og var réttur maður á réttum stað þegar sendingin frá Kristni kom.
2. Bjarni Ólafur Eiríksson
Var hluti af frábæru lið Valsmanna i kvöld. Átti urmul af góðum sendingum og barðist vel fyrir liðið. Sífellt ógnandi þegar hann fékk boltann og keyrði með hann upp kantinn og sendingarnar hans fyrir markið oftast nær mjög vel heppnaðar.
Atvikið
Lítið af atvikum í þessum leik sem skiptu sköpum. Það má kannski nefna þegar Kristinn Freyr kemst inn fyrir vörn Selfyssinga og Halldór Arnarsson hjólar rækilega í hann og Valsmenn heimta vítaspyrnu en þá er línuvörðurinn búin að flagga og Kristinn því rangstæður.
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn verða í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit í Borgunarbikarnum en Selfyssingar geta núna einbeitt sér alfarið að deildinni þar sem stigasöfnun þeirra þar gengur brösulega.
Vondur dagur
Sóknarlína Selfyssinga átti ekkert sérstaklega gott kvöld. Voru bitlausir frammá við og náðu ekkert að spila boltanum innan liðsins. Það er þó erfitt að tala eingöngu um sóknarlínuna þegar allt liðið spilaði svoleiðis. Selfyssingar í heild réðu ekki við gæðin í þessum leik.
Dómarinn - 7,5
Garðar og hans menn voru flottir í þessum leik. Hefði mátt láta leikinn fljóta aðeins meira á köflum en ekkert meira hægt að setja útá hans frammistöðu. Þæginlegur leikur að dæma.
Byrjunarlið:
1. Vignir Jóhannesson (m)
Sigurður Eyberg Guðlaugsson
Einar Ottó Antonsson
3. Jordan Lee Edridge ('56)
4. Andy Pew (f)
5. Matthew Whatley
8. Ivanirson Silva Oliveira ('63)
12. Magnús Ingi Einarsson ('59)
18. Arnar Logi Sveinsson
20. Sindri Pálmason
24. Halldór Arnarsson

Varamenn:
1. Pétur Logi Pétursson (m)
7. Svavar Berg Jóhannsson ('59)
21. Marko Pavlov ('56)
22. Ingþór Björgvinsson
29. Kristján Atli Marteinsson

Liðsstjórn:
Þorsteinn Daníel Þorsteinsson
Ingi Rafn Ingibergsson

Gul spjöld:
Einar Ottó Antonsson ('47)
Arnar Logi Sveinsson ('85)

Rauð spjöld: