Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Valur
0
3
Breiðablik
0-1 Árni Vilhjálmsson '37
Rasmus Christiansen '45
0-2 Gísli Eyjólfsson '52
0-3 Árni Vilhjálmsson '66
15.09.2016  -  20:00
Valsvöllur
Pepsi-deild karla 2016
Aðstæður: Hægur vindur, skýjað og 9 stiga hiti, hreint frábært fótboltaveður á teppinu Valsmanna.
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
Byrjunarlið:
33. Anton Ari Einarsson (m)
2. Andreas Albech
3. Kristian Gaarde
7. Haukur Páll Sigurðsson
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson ('77)
13. Rasmus Christiansen
17. Andri Adolphsson ('70)
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
22. Sveinn Aron Guðjohnsen ('70)

Varamenn:
25. Jón Freyr Eyþórsson (m)
4. Einar Karl Ingvarsson
6. Daði Bergsson ('77)
10. Guðjón Pétur Lýðsson ('70)
12. Nikolaj Hansen
23. Andri Fannar Stefánsson

Liðsstjórn:
Ólafur Jóhannesson (Þ)
Rajko Stanisic
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson
Halldór Eyþórsson
Fannar Gauti Dagbjartsson
Einar Óli Þorvarðarson
Kjartan Kárason

Gul spjöld:
Sigurður Egill Lárusson ('33)
Haukur Páll Sigurðsson ('58)

Rauð spjöld:
Rasmus Christiansen ('45)
@maggimark Magnús Þór Jónsson
Skýrslan: Evrópukeppnin hlýtur að bíða Blika.
Hvað réði úrslitum?
Gæði í sóknarleik Blika skáru hér úr. Fyrsta markið vel teiknað í gegnum vörn heimamanna og síðari hálfleikurinn sýndi skyndisóknahæfileika Blikanna vel.
Bestu leikmenn
1. Árni Vilhjálmsson
Þvílíkur leikur hjá Árna. Tvö frábær mörk og stoðsending. Strákur nú kominn með 6 mörk í 8 leikjum. Þvílík sending sem Blikum barst að fá strákinn heim. Pínu fúlt að hann fékk ekki að klára leikinn, en auðvitað verið að hvíla hann fyrir næstu átök skammt undan.
2. Gísli Eyjólfsson
Flott mark og átti þátt í flestum sóknum Blikanna, fullur af sjálfstrausti og orku.
Atvikið
Upp úr hornspyrnu Valsmanna var Árni Vilhjálms búinn að stinga boltanum framhjá Rasmus á miðjum vellinum og sloppinn í gegn. Rasmus felldi hann allharkalega og fékk fyrir það rautt spjald. Þrátt fyrir góða baráttu Valsara og mikinn vilja þá einfaldlega kláraði þetta atvik leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar tylla sér í annað sætið og færast nær sæti í Evrópukeppni á næsta ári, eru komnir í verulega góða stöðu í þeirri baráttu. Bikarmeistararnir í Val hafa nú misst forystuna um silfrið eftir sitt fyrsta tap síðan 17.júlí.
Vondur dagur
Rasmus horfir ekki svo glatt á Pepsimörkin að þessu sinni. Var í vandræðum varnarlega allt þar til á 45.mínútu að hann braut af sér og var sendur í sturtu.
Dómarinn - 9,5
Gunnar stjórnaði þessum leik algerlega. Hann var ekki í nokkrum vafa með brottvísunina og fór áreynslulaust um svæðið. Fengi 10,0 ef hann hefði ekki flautað og dæmt rangstöðu þegar boltinn var kominn yfir endalínu. Fagmennska heitir þetta!
Byrjunarlið:
Gunnleifur Gunnleifsson
3. Oliver Sigurjónsson ('73)
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
8. Arnþór Ari Atlason
10. Árni Vilhjálmsson ('70)
11. Gísli Eyjólfsson ('85)
15. Davíð Kristján Ólafsson
23. Daniel Bamberg
26. Alfons Sampsted
30. Andri Rafn Yeoman

Varamenn:
33. Hlynur Örn Hlöðversson (m)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
10. Atli Sigurjónsson
17. Jonathan Glenn ('70)
21. Viktor Örn Margeirsson
22. Ellert Hreinsson ('85)

Liðsstjórn:
Ólafur Pétursson (Þ)
Arnar Grétarsson (Þ)
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Höskuldur Gunnlaugsson
Jón Magnússon
Elvar Leonardsson
Pétur Ómar Ágústsson

Gul spjöld:
Elfar Freyr Helgason ('45)
Gísli Eyjólfsson ('50)

Rauð spjöld: