Liverpool horfir til Frimpong og Kerkez - Man Utd skoðar bakverði - Arsenal hefur átt í viðræðum um Wharton
Valur
4
0
Keflavík
Kolbeinn Kárason '47 1-0
Matthías Guðmundsson '49 2-0
Kolbeinn Kárason '60 3-0
Kristinn Freyr Sigurðsson '88 4-0
31.05.2012  -  19:15
Hlíðarendi
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Frábærar, sól og sumarylur
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: 1273
Maður leiksins: Kolbeinn Kárason, Valur
Byrjunarlið:
Matthías Guðmundsson
Haukur Páll Sigurðsson

Varamenn:
Ásgeir Þór Magnússon (m)
10. Guðjón Pétur Lýðsson
10. Kristinn Freyr Sigurðsson ('63)
23. Andri Fannar Stefánsson ('70)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Nesta Matarr Jobe ('93)
Úlfar Hrafn Pálsson ('20)

Rauð spjöld:
@maggimar Magnús Már Einarsson
Kolbeinn Kárason kláraði Keflavík
Leikurinn á Hlíðarenda byrjaði með rólegheitum. Það var líkt og liðin hefðu meiri áhuga á sólinni en leiknum. Seinni hluta fyrri hálfleiks sóttu Keflvíkingar aðeins í sig veðrið og komu flestar þeirra sóknir í gegnum Guðmund Steinarsson.

Það var því áfall fyrir Keflvíkinga þegar Guðmundur fór af leikvelli í hálfleik.
Kolbeinn Kárason, besti maður vallarins í dag, kom s vo Valsmönnum yfir með fínu skoti fyrir utan vítateig en Ómar Jóhannsson hefði átt að gera betur í marki Keflavík. Matthías Guðmundsson kom svo Valsmönnum í 2-0 með góðu skoti innan úr vítateig áður en Kolbeinn bætti sínu öðru marki við og kom Valsmönnum í 3-0.

Keflvíkingar virkuðu ráðalausir í seinni hálfleiknum í dag á meðan Kristján Guðmundsson blés lífi í sína menn.

Það var greinilegt að Keflvíkingar söknuðu Guðmundar Steinarssonar og verða að vona að hann verði ekki lengir frá. Að sama skapi náði Hilmar Geir Eiðsson sér ekki á strik eftir að vera kominn í byrjunarlið Keflavíkur aftur eftir eyrnameiðsli. Zoran Daníel þarf að finna frekari lausnir á miðsvæði liðsins eigi þeir að skapa sér fleiri færi og skila fleriri stigum í hús.

Valsmenn fundu fjölina í dag og náðu að koma boltanum í gegnum miðjumenn sína og skapa þannig góð færi, trekk í trekk. Matthías Guðmundsson og Kolbeinn Kárason voru afar sterkir í þeirra liði og á hinum endanum sáu Atli Sveinn og Matarr Jobe til þess að Keflvíkingar kæmust hvorki lönd né strönd.

Úrslitin eru afar jákvæð fyrir Valsmenn sem með sigrinum komast í 9 stig í Pepsi-deild karla og þar með í 4. sæti að sinni.
Byrjunarlið:
Haraldur Freyr Guðmundsson
Ómar Jóhannsson
Jóhann Birnir Guðmundsson
Sigurbergur Elísson ('67)
6. Einar Orri Einarsson
25. Frans Elvarsson (f) ('67)

Varamenn:
12. Bergsteinn Magnússon (m)
9. Daníel Gylfason
11. Magnús Sverrir Þorsteinsson ('67)
11. Bojan Stefán Ljubicic ('45)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Einar Orri Einarsson ('84)
Frans Elvarsson ('7)

Rauð spjöld: