Selfossvöllur
sunnudagur 29. júlí 2012
kl. 19:15
Pepsi deild karla
Aðstæður: Góðar
Dómari: Kristinn Jakobsson
Áhorfendur: 588
Maður leiksins: Matthías Guðmundsson
Selfoss 0 - 1 Valur
0-1 Matthías Guðmundsson ('60)
Myndir: Fótbolti.net - Gunnar Már Hauksson
Byrjunarlið:
15. Vigfús Blær Ingason (m)
5. Bernard Petrus Brons
8. Ingvi Rafn Óskarsson
9. Joseph David Yoffe
13. Bjarki Aðalsteinsson

Varamenn:
16. Gunnar M. Hallgrímsson (m)
2. Sigurður Eyberg Guðlaugsson
10. Ingólfur Þórarinsson
19. Svavar Berg Jóhannsson
25. Magnús Ingi Einarsson ('90)

Gul spjöld:
Jón Daði Böðvarsson ('93)
Luka Jagacic ('91)
Ingvi Rafn Óskarsson ('57)
Ólafur Karl Finsen ('9)

Rauð spjöld:

Einar Matthías Kristjánsson
Valsmenn hirtu öll stigin á Selfossi
Slæmt gengi Selfyssinga hélt áfram í dag er Valsmenn komu í heimsókn austur fyrir fjall og hirtu öll stigin í hörkuleik. Selfyssingar tefldu fram þremur nýjum leikmönnum á skýrslu í dag og létu tvo menn fara fyrir þennan leik.

Þessar breytingar virtust aðeins hressa upp á liðið sem var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og áttu nokkra góða kafla sem hafa ekki sést undanfarið. Valsmenn voru þó hættulegir fram á við líka og þá sérstaklega Matthías Guðmundsson sem kom Marko Hermo nýjum vinstri bakverði heimamanna oft á tíðum í vandræði. Besta færi Valsmanna fékk þó Rúnar Már er hann skallaði framhjá úr góðu færi en hinumegin voru það þeir Tómas Leifsson og Ólafur Karl sem komust næst því að skora.

Seinni hálfleikur byrjaði með miklum látum og áttu bæði lið dauðafæri strax á upphafsmínútunum. Kristinn Freyr fékk opið skot sem Ismet varði vel á meðan Viðar og Tómas Leifsson áttu besta færi leiksins hinumegin en létu Ólaf Þór verja frá sér í tvígang.

Valsmenn tóku yfirhöndina eftir ca. tíu mínútna leik og var Matthías Guðmundsson þar allt í öllu og var með áætlunarferðir upp kantinn. Hann fékk gult fyrir leikaraskap inni í teig á 57.mínútu en var ekki að láta það hafa áhrif á sig því hann skoraði gott skallamark á 60.mínútu eftir sendingu frá Rúnari Má.

Eftir markið datt leikurinn töluvert mikið niður og heimamenn virtust bæði þreytast og missa aðeins trú á verkefninu. Logi Ólafsson gerði breytingar á 68.mínútu er hann setti þá Egil Jónsson og Cisse inná, Egill var að spila sinn fyrsta leik fyrir Selfoss á meðan Cisse var líklega að spila sinn síðasta. Þetta hafði ekki mikið að gera fyrir sóknarleik Selfyssinga sem voru aldrei líklegir til að jafna á lokamínútunum og Valsmenn sigldu þessu nokkuð örugglega í land á endanum.

Staða Selfyssinga skánar lítið við þetta þó leikur þeirra hafi verið betri en liðið vann ekki deildarleik í júní og júlí. Valsmenn eru hinsvegar um miðja deild, hvorki að berjast á toppi eða botni í augnablikinu.
Byrjunarlið:
8. Rúnar Már Sigurjónsson
8. Kristinn Freyr Sigurðsson
9. Kolbeinn Kárason
10. Guðjón Pétur Lýðsson
11. Matthías Guðmundsson
17. Þórir Guðjónsson ('82)
22. Nesta Matarr Jobe

Varamenn:
32. Eyjólfur Tómasson (m)
3. Haukur Ásberg Hilmarsson
6. Hafsteinn Briem ('82)
19. Ásgeir Þór Ingólfsson
20. Indriði Áki Þorláksson
23. Andri Fannar Stefánsson

Gul spjöld:
Þórir Guðjónsson ('81)
Matthías Guðmundsson ('56)
Halldór Kristinn Halldórsson ('25)

Rauð spjöld: